Fotbolti.net
27.02.20 - 12:26
Elvar Geir Magnússon

Gæti kórónaveiran haft áhrif á umspilsleiki Íslands?

Emil Hallfreðsson spilar á Ítalíu.

Emil Hallfreðsson spilar á Ítalíu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Í morgun var greint frá því að Berglind Björg Þorvaldsdóttir færi ekki með kvennalandsliðinu í komandi verkefni vegna kórónaveirunnar sem hefur greinst á Ítalíu.

Veiran er að dreifast hratt um og á Ítalíu eru miklar ráðstafanir í gangi, fótboltaleikjum frestað og leikið fyrir luktum dyrum.
Þann 26. mars mun íslenska karlalandsliðið leika mikilvægan leik gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM alls staðar. Sigurliðið ferðast svo í úrslitaleik gegn Ungverjalandi eða Búlgaríu.

„Við mun­um taka til­lit til til­mæla og fyr­ir­mæla stjórn­valda þegar nær dreg­ur um­spils­leikj­un­um og auðvitað von­umst við til þess að mál­in þró­ist í rétta átt. Að sjálf­sögðu von­umst við til þess að all­ir leik­menn Íslands verði til­bún­ir fyr­ir þenn­an til­tæka leik og ég á ekki von á neinu öðru," segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ, í samtali við mbl.is.

„Við höld­um áfram að fylgj­ast vel með og mun­um gera all­ar þær ráðstaf­an­ir sem við þurf­um til þess að bæði spila þá leiki sem eiga að fara fram og eins nota alla þá leik­menn sem okk­ur standa til boða."

Flestir leikmanna íslenska landsliðsins spila á meginlandi Evrópu en útbreiðsla veirunnar hefur valdið miklum áhyggjum.

Heimild: mbl.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.