27.02.21 - 15:57
Victor Pálsson
Ítalía: Parma mistókst að halda forystunni

Spezia kom til baka.

Mynd: Getty Images

Spezia kom til baka.

Mynd: Getty Images
<b>Spezia 2 - 2 Parma</b>
0-1 Yann Karamoh('17)
0-2 Hernani('25)
1-2 Emmanuel Gyasi('52)
2-2 Emmanuel Gyasi('72)
0-1 Yann Karamoh('17)
0-2 Hernani('25)
1-2 Emmanuel Gyasi('52)
2-2 Emmanuel Gyasi('72)
Parma mistókst að ná í gríðarlega mikilvæg þrjú stig í Serie A í dag er liðið mætti Spexia í fyrsta leik dagsins.
Parma hefur verið í miklu basli á leiktíðinni og var fyrir leikinn sex stigum frá öruggu sæti eftir 23 umferðir.
Gestirnir voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og voru með 2-0 forystu þegar dómarinn flautaði til leikhlés.
Því miður fyrir Parma þá tókst Spezia að skora tvö mörk í seinni hálfleik en þau bæði gerði sóknarmaðurinn Emmanuel Gyasi.
Spezia er einnig í fallbaráttu en er nú fimm stigum frá Cagliari sem situr í 18. sætinu.