Fotbolti.net
27.03.20 - 13:24
Magnús Már Einarsson

Eggert Gunnþór í FH?

Eggert Gunnþór í FH?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Eggert Gunnþór Jónsson er á leið í FH samkvæmt því sem kom fram í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.
Hinn 31 árs gamli Eggert hefur verið á mála hjá danska félaginu SønderjyskE síðan árið 2017.

Eggert Gunnþór ólst upp hjá Fjarðabyggð en hann hefur spilað í atvinnumennsku erlendis síðan árið 2006.

Á þeim tíma hefur hann leikið með Hearts, Wolves, Charlton, Belenenses, FC Vestsjælland, Fleetwood og SønderjyskE.

Eggert getur spilað bæði á miðjunni og í vörninni en hann á 21 leik að baki með íslenska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.