Jonathan David, framherji Lille í Frakklandi, er mikill stuðningsmaður Barcelona á Spáni, en þetta segir hann í viðtali við Winamax.
Kanadíski landsliðsmaðurinn er markahæsti leikmaður Lille á þessari öld en hann hefur verið sjóðandi heitur á tímabilinu og er von á því að hann sé að spila sitt síðasta tímabil í Frakklandi.
David hefur talað opinskátt um áhuga sinn á að fara til Englands og Spánar en nú er hann byrjaður að daðra við Barcelona, sem hann segir að sé hans uppáhalds lið í boltanum.
„Barcelona hefur verið uppáhalds liðið mitt síðan ég var krakki,“ sagði David við Winamax.
Sóknarmaðurinn er með 21 mark í öllum keppnum á þessu tímabili.
Athugasemdir