Fotbolti.net
27.04.21 - 12:15
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Juventus og Milan eiga á hættu að komast ekki í Meistaradeildina

Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: Getty Images

Fimm lið eru að berjast um þrjú Meistaradeildarsæti í ítölsku A-deildinni. Inter hefur þegar tryggt sér sæti í keppninni og gæti innsiglað meistaratitilinn um næstu helgi, ef þeir vinna Crotone á laugardaginn og Atalanta mistekst að vinna Sassuolo daginn eftir.
Atalanta er í öðru sæti með 68 stig en AC Milan tapaði í gær og er með 66 stig eins og Napoli og Juventus. Napoli er í sjötta sjætinu með 61 stig en á leik til góða.

Napoli mætir Torino þann 18. maí í leik sem var frestað úr 25. umferð en annars eru fimm umferðir eftir, einn af lykilleikjunum er viðureign Juventus og AC Milan þann 9. maí.

AC Milan á einnig eftir að mæta Atalanta, í lokaumferðinni, og Juventus mun leika gegn Inter í sínum síðasta heimaleik.

Atalanta er það lið sem er á besta skriðinu í ítölsku A-deildinni núna, með 13 stig úr síðustu fimm deildarleikjum.

Ef lið enda jöfn að stigum eru það innbyrðis viðureignir sem eru notaðar til að skilja liðin að, ef staðan er jöfn þar er leitað í markatöluna.

Leikirnir sem liðin eiga eftir:

Atalanta 68 stig
Sassuolo (Ú), Parma (Ú), Benevento (H), Genoa (Ú), Milan (H)

AC Milan 66 stig
Benevento (H), Juventus (Ú), Torino (Ú), Cagliari (H), Atalanta (Ú)

Juventus 66 stig
Udinese (Ú), Milan (H), Sassuolo (Ú), Inter (H), Bologna (Ú)

Napoli 66 stig
Cagliari (H), Spezia (Ú), Udinese (H), Fiorentina (Ú), Verona (H)

Lazio 61 stig
Genoa (Ú), Fiorentina (Ú), Parma (H), Roma (Ú), Torino (H), Sassuolo (Ú)
Zlatan Ibrahimovic.

Zlatan Ibrahimovic.

Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Roma11+1825
3Inter10+1325
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone11+920
7Juventus10+317
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli10+414
11Torino11-214
12Genoa10-413
13Atalanta10-411
14Lecce11-1010
15Sassuolo11-109
16Parma11-88
17Fiorentina10-88
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.