Fotbolti.net
27.05.22 - 21:57
Patrekur Orri Guðjónsson

John Andrews: Við spiluðum ekki okkar fótbolta í dag

John Andrews, þjálfari Víkings

John Andrews, þjálfari Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Aldrei gaman að tapa leik, sérstaklega þegar maður gefur svona mikið í leikinn. Mér fannst leikmennirnir mínir frábærir í dag," sagði John Andrews eftir 1-2 tap gegn Þrótti í Mjólkurbikarnum.
Við spiluðum ekki okkar fótbolta í dag, af einhverjum ástæðum þá breyttum við þessum leik í baráttuleik. Við spilum fallegan fótbolta og mér fannst við ekki gera það fyrr en eftir fyrstu 20-25 mínúturnar."

Að spila gegn liðinu í 2. sæti í bestu deildinni getur verið sjokk fyrir okkar lið, en eftir fyrsta hlaup og fyrstu tæklingu þá sjáum við að við erum jafn góðu formi, jafnsterkar og gefum öllum leik."

Við þurfum að fókusa á deildina okkar, þessi leikur var ákveðinn bónus fyrir okkur."

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.