27.05.24 - 08:50
Elvar Geir Magnússon
Ætlar ekki að breyta leikstílnum í úrvalsdeildinni

Russell Martin.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Russell Martin.

Mynd: Getty Images
Russell Martin, stjóri Southampton, segir að leikmenn sínir þurfi að takast á við þá áskorun að spila „hans leikstíl“ í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Martin segist ekki ætla að breyta leikstílnum þrátt fyrir að Southampton, sem vann Leeds á Wembley í gær, sé komið upp í deild þeirra bestu.
Southampton fór rólega af stað í Championship-deildinni á þessu tímabili og leikstíll Martin fékk nokkra gagnrýni. Hann leggur mikla áherslu á að lið sitt haldi vel í boltann og skori hátt í „possession“.
Eftir því sem á tímabilið leið þá fann Southampton sig betur í þessum leikstíl og fór í gegnum 25 leiki án þess að bíða ósigur. Martin stýrir í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni og margir efast um að leikstíllinn geti skilað Southampton velgengni í efstu deild.

TENGT EFNI
England: Armstrong skaut Southampton aftur upp í úrvalsdeildina
„Ég veit að það gefur þér ekki sigur í leikjum að halda í boltann. En þetta er verkfæri fyrir okkur til að gefa okkur besta tækifærið til að sýna bestu útgáfuna af sjálfum okkur. Ég trúi svo sannarlega á það. Ef þú vinnur með þessum hætti þá er það besta leiðin, ekki rétt eða röng leið en sú besta," segir Martin.
Southampton lauk deildarkeppni Championship í fjórða sæti, komst í umspilið þar sem liðið vann West Bromwich Albion í undanúrslitum áður en það lagði Leeds í úrslitaleiknum.
Jo Tessem, fyrrum leikmaður Southampton, segir Russell Martin eiga allt hrós skilið en telur að hann þurfi þó að gera tilfæringar og fínpússa leikstílinn fyrir ensku úrvalsdeildina. Liðið fékk á sig 63 mörk í 46 Championship-leikjum.
„Martin verður að sýna meiri klókindi varðandi leikstílinn á næsta tímabili. Þetta snýst um leikmennina sem hann fær til félagsins fyrir úrvalsdeildina. Það þarf að skoða hverjir í núverandi hóp eru nægilega góðir," segir Tessem.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |