Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 27. júní 2022 17:45
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Silkeborg sigraði Kaupmannahöfn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var Íslendingaslagur þegar FC Kaupmannahöfn mætti Silkeborg í æfingaleik í dag, þó að engir Íslendingar hafi mæst sem andstæðingar inni á vellinum.


Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborg og spilaði fyrri hálfleikinn á meðan Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson byrjuðu á bekknum hjá FCK og komu inn í hálfleik. 

Staðan var markalaus í leikhlé en Silkeborg vann seinni hálfleikinn 0-2.

Atli Barkarson var þá í byrjunarliði SönderjyskE sem tapaði fyrir Fredericia eftir að hafa komist yfir snemma leiks.

Að lokum gerði Olympiakos jafntefli við Cracovia en Ögmundur Kristinsson var ekki á milli stanganna.

Kaupmannahöfn 0 - 2 Silkeborg
0-1 O. Fuglsang ('50)
0-2 N. Vallys ('79)

SönderjyskE 1 - 2 Fredericia
1-0 M. Hyllegaard ('17)
1-1 M. Kristensen ('35)
1-2 ('70)

Olympiakos 0 - 0 Cracovia


Athugasemdir
banner
banner