Fotbolti.net
27.08.22 - 22:38
Brynjar Ingi Erluson

Montella brjálaðist út í Balotelli - Þurfti að aðskilja þá eftir leik

Mario Balotelli elskar að koma sér í vesen

Mario Balotelli elskar að koma sér í vesen

Canon

Mynd: Getty Images

Vincenzo Montella, þjálfari Adana Demirspor, ætlaði að hjóla í landa sinn, Mario Balotelli, eftir 1-0 sigur liðsins á Umraniyespor í tyrknesku deildinni í kvöld.
Balotelli byrjaði á bekknum hjá Adana í kvöld en kom við sögu undir lok leiks.

Framherjinn var greinilega eitthvað ósáttur við Montella og skiptust þeir á orðum áður en þjálfarinn snöggreiddist og ætlaði í Balotelli.

Ekki er vitað hvað Balotelli sagði við hann en það þurfti að aðskilja þá félaga í kjölfarið.

Balotelli er þekktur fyrir vandræði sín hvert sem hann fer og virðist hugarfar hans ekkert hafa breyst. Íslenski landsliðsfyrirliðinn Birkir Bjarnason er samherji Balotelli hjá Adana en myndskeið af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.