27.10.26 - 09:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hinrik hafnaði Þrótti

Mynd: Egersund

Mynd: Egersund
Í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag var sagt frá því að Þróttur Reykjavík hefði lagt fram tilboð í Hinrik Harðarson.
Hinrik er uppalinn hjá Þrótti og lék með liðinu á árunum 2021-23 í Lengjudeildinni. Hinrik er leikmaður Egersund í næstefstu deild Noregs.
Þróttarar komust upp í Bestu deildina í ár og ætla sér að styrkja leikmannahópinn í vetur. Hinrik, sem er 22 ára sóknarmaður, myndi koma til með að styrkja liðið.

Í þættinum kom fram að Egersund samþykkti tilboð Þróttar en að teymi Hinriks hefði hafnað því. Hann ætlar sér að halda áfram úti í atvinnumennsku.
Hinrik lagði upp mark um helgina í 3-3 jafntefli gegn Bryne. Hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp eitt í tólf leikjum með Egersund eftir að hafa verið keyptur frá Odd en aðeins einn þeirra hefur verið sem byrjunarliðsmaður, og hann skoraði einmitt í þeim leik.
Hinrik lék með ÍA tímabilið 2024 í Bestu deildinni, skoraði sjö mörk og lagði upp tvö og var í kjölfarið seldur til Odd.
Í þættinum kom einnig fram að Þróttur hefði áhuga á Oliver Heiðarssyni leikmanni KA.