Fotbolti.net
27.11.20 - 21:56
Ívan Guðjón Baldursson

England: Wilson og Joelinton hetjurnar

Wilson er kominn með 7 mörk í 9 deildarleikjum hjá Newcastle.

Wilson er kominn með 7 mörk í 9 deildarleikjum hjá Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace 0 - 2 Newcastle
0-1 Callum Wilson ('88)
0-2 Joelinton ('90)
Callum Wilson og Joelinton voru hetjurnar er Newcastle lagði Crystal Palace að velli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Staðan var markalaus í jöfnum leik þar sem bæði lið voru staðráðin í því að gefa ekkert eftir.

Bæði lið fengu fín færi en jafnræði ríkti á vellinum allt þar til undir lokin þegar stórkostlegt samspil Joelinton og Wilson skilaði sér með marki.

Rúmri mínútu síðar endurlaunaði Wilson greiðann og lagði hann upp fyrir Joelinton úr skyndisókn.

Newcastle stal stigunum með þessum mörkum og er liðið komið upp í tíunda sæti, með 14 stig eftir 10 umferðir. Crystal Palace er með 13 stig.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.