Fotbolti.net
27.11.24 - 22:45
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Leeds endurheimti toppsætið

Daniel James skoraði geggjað mark

Daniel James skoraði geggjað mark

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United er komið á toppinn í ensku B-deildinni eftir að liðið vann sannfærandi 3-0 sigur á Luton á Elland Road í kvöld.
Sheffield United komst tímabundið á toppinn með sigri liðsins í gær en Leeds var ekki lengi að endurheimta það.

Sam Byram skoraði stórskemmtilegt mark með karatesparki á 10. mínútu. Hann reyndi skot sem fór af varnarmanni og upp í loft, en í annarri tilraun ákvað hann að hlaða í skot sem minnti einna helst á karatespark og heppnaðist það fullkomlega.

Joel Piroe bætti við öðru á lokamínútu fyrri hálfleiks áður en Daniel James skoraði stórbrotið mark með því að lyfta boltanum við vítateigslínuna, yfirmarkvörð Luton og í netið.

Öruggur 3-0 sigur Leeds sem er nú með 35 stig í toppsæti deildarinnar en Luton í 16. sæti með 18 stig.

Arnór Sigurðsson var fjarri góðu gamni er Blackburn Rovers vann 1-0 útisigur á Middlesbrough. Blackburn er í 8. sæti með 25 stig.

Leeds 3 - 0 Luton
1-0 Sam Byram ('10 )
2-0 Joel Piroe ('45 )
3-0 Daniel James ('81 )

Cardiff City 0 - 2 QPR
0-1 Zan Celar ('40 )
0-2 Zan Celar ('90 )

Derby County 1 - 2 Swansea
0-1 Zan Vipotnik ('2 )
0-2 Ronald Pereira Martins ('14 )
1-2 Nathaniel Mendez-Laing ('65 , víti)

Middlesbrough 0 - 1 Blackburn
0-1 Dominic Hyam ('77 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+628
6Swansea15+426
7West Ham15+1524
8Southampton15+1424
9Sheffield Utd15+323
10QPR15+522
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-219
14Millwall15-218
15Wrexham15-218
16Bristol City15-818
17Bolton15-917
18Lincoln City15-1016
19Cardiff City15-215
20Watford15-1015
21Charlton Athletic15-1115
22Burnley15-713
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.