Hverfisyfirvöld hafa einróma sýnt áformum Manchester United um að byggja nýjan 100 þúsund manna leikvang stuðning sinn. Stjórnvöld ætla nú að setja saman ráðgjafateymi sem á að hjálpa til við að móta endurskipulag á Old Trafford svæðinu.
Enskir fjölmiðlar tala um verkefnið sem 'Wembley norðursins' en Old Trafford þarfnast viðamikilla endurbóta. Öll aðstaða er barn síns tíma og þakið lekur eins og stuðningsmenn annarra liða hafa gert mikið grín að.
Enskir fjölmiðlar tala um verkefnið sem 'Wembley norðursins' en Old Trafford þarfnast viðamikilla endurbóta. Öll aðstaða er barn síns tíma og þakið lekur eins og stuðningsmenn annarra liða hafa gert mikið grín að.
Stjórnvöld telja að bygging á nýjum leikvangi muni stuðla að miklum hagvexti og veiti yfir 90 þúsund störf. United mun borga fyrir bygginguna á leikvangnum en stjórnvöld þurfa að koma að innviðum við leikvanginn og byggja upp samgöngur.
Á næstu mánuðum verður tekin ákvörðun um hvort byggður verði nýr leikvangur frá grunni eða Old Trafford endurnýjaður og stækkaður. Hallast er að því að byggja nýjan leikvang frá grunni en í skýrslu sérstakar nefndar er það talið það besta í stöðunni.
Liz Patel sem situr í hverfisráði segist í skýjunum með að stjórnvöld hafi sýnt áformunum stuðning.
„Þetta myndi hafa frábær áhrif á svæðið og nærliggjandi hverfi. Þetta er gríðarlega spennandi verkefni sem mun skapa mörg störf, nú hverfi og heimsklassa umhverfi fyrir leikvang Manchester United. Við munum tryggja að þetta muni gagnast öllum, þar á meðal íbúum, fyrirtækjum og fótboltaaðdáendum," segir Patel.
Athugasemdir