Fotbolti.net
28.01.25 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Skráning hafin í Liverpool skólann

Skráning hafin í Liverpool skólann
Canon

Mynd: Liverpool skólinn

Liverpool skólinn, sem er samstarfsverkefni Liverpool og Aftureldingar, verður haldinn í þrettánda sinn á Íslandi.
Í ár koma þrettán þjálfarar til landsins frá alþjóðlegri fótboltaakademíu Liverpool og þjálfa börn á grunnskólaaldri, frá 6-16 ára.

Skólinn, sem hefur verið gríðarlega vinsæll frá upphafi, er staðsettur á Tungubökkum í Mosfellsbæ og fer kennsla fram í þrjá daga, frá klukkan 09 til 15.

Skólanum er skipt upp í tvo hópa þar sem fyrri hópur mætir til æfinga 7.-9. júní og seinni hópur 10.-12. júní.

Skólinn er bæði fyrir stelpur og stráka.

Nánari upplýsingar fást á Facebook síðu Liverpool skólans eða í gegnum póstfangið [email protected].
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.