Fotbolti.net
28.02.20 - 20:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Markvörður Leeds í átta leikja bann fyrir rasisma

Kiko Casilla.

Kiko Casilla.

Canon

Mynd: Getty Images

Kiko Casilla, markvörður Leeds United í Championship-deildinni, hefur verið dæmdur sekur um rasisma í garð Jonathan Leko, kantmanns Charlton Athletic.

Casilla fer í átta leikja bann og þarf að greiða háa sekt að andvirði tæplega 9,8 milljóna íslenskra króna.
Spænski markvörðurinn þarf einnig að fara á námskeið út af hegðun sinni gagnvart Leko.

Casilla neitaði sök í máli, en aganefnd komst að þeirri niðustöðu að hann væri sekur. Enska knattspyrnusambandið mun birta ástæður fyrir dómnum í næstu viku.

Leeds er í öðru sæti Championship-deildarinnar og mun Illan Meslier, 19 ára gamall lánsmaður frá Lorient í Frakklandi, koma inn í markið fyrir Casilla.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough14+1128
2Wolves14+827
3Birmingham14+1326
4Stoke City14+526
5Swansea14+526
6West Brom14+525
7Southampton14+1524
8West Ham14+1523
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City14-318
16Wrexham14-217
17Bolton15-917
18Cardiff City14-115
19Lincoln City14-1015
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County15-1610
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.