Fotbolti.net
28.02.20 - 13:15
Elvar Geir Magnússon

Mun kórónaveiran koma í veg fyrir Englandsmeistaratitil Liverpool?

Gæti það verið?

Gæti það verið?

Canon

Mynd: Getty Images

<i>Telegraph</i> segir að mögulegt sé að tveggja mánaða bann verði sett við íþróttaviðburði á Bretlandseyjum ef útbreiðsla Wuhan kórónaveirunnar eykst enn frekar.

Samkvæmt frétt blaðsins gæti Liverpool misst af enska meistaratitlinum ef keppni í ensku úrvalsdeildinni verður hætt.
Engar sérstakar reglur séu til staðar um hvað eigi að gera ef allar 38 umferðir tímabilsins eru ekki kláraðar.

Mögulegt sé að enginn verði meistari þetta árið og ekkert lið falli.

Liverpool er með mikla yfirburði í ensku úrvalsdeildinni, 22 stiga forystu. Það eru ellefu umferðir eftir af deildinni og Liverpool á leið með að vinna sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 30 ár.

En kórónaveiran breiðist hratt um Evrópu og breska ríkisstjórnin er að setja upp viðbragðsáætlun.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal12+1029
2Man City12+823
3Brighton12+1622
4Liverpool12+822
5Bournemouth12+521
6Brentford12+1320
7Leeds12+820
8Tottenham12+318
9Hull City12+317
10Everton12-217
11Chelsea12-116
12Newcastle12-216
13Aston Villa12-315
14Nott. Forest12-512
15Ipswich Town12-712
16Coventry12-1112
17Fulham12-311
18Sunderland12-119
19Man Utd12-138
20Crystal Palace12-167
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.