Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 28. mars 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
UMFÍ hefur fengið vísbendingar um æfingar íþróttafólks
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Mynd: UMFÍ
Mynd: UMFÍ
UMFÍ birti frétt í gærkvöldi þar sem greint er frá því að íslenskt íþróttafólk hefur verið að æfa saman í laumi þrátt fyrir strangt samkomubann yfirvalda vegna kórónuveirunnar.

Það er vika liðin síðan ÍSÍ og UMFÍ sendu út sameiginlega tilkynningu um að öllum æfingum yrði hætt til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar.

„Við höfum fengið vísbendingar um að íþróttafólk félaga sé að stunda íþróttaæfingar úti í litlum hópum þrátt fyrir strangt samkomubann. Það er ekki til fyrirmyndar. Ég hreinlega undrast að fólk haldi að bannið eigi við um aðra en ekki það sjálft. Við leggjum áherslu við stjórnendur í íþróttahreyfingunni að allt íþróttastarfi eigi að fella niður, bæði barna og fullorðinna, boltaíþróttir, hestaíþróttir, dans og aðrar greinar,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, í frétt á vefsíðu sambandsins.

Allt íþróttastarf fellur niður
Samkvæmt leiðbeinandi viðmiðum á að fella niður allt íþróttastarf barna og fullorðinna á meðan takmörkun á samkomum og skólastarfi er í gildi.

Samkomutakmörkunum á að ljúka 13. apríl, annan í páskum. Sóttvarnalæknir gaf hins vegar í skyn í dag að viðbúið sé að þær muni vara lengur. Sektargreiðslur geta legið við brotum á samkomubanni og takmörkunum yfirvalda.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, ítrekaði samkomubannið á fundi í dag og sagði margar undanþágubeiðnir hafa borist. Svo virðist sem ekki séu allir með á nótunum. Allir verði að taka samkomubanninu alvarlega og fara eftir þeim leiðbeiningunum sem gefin eru út.

„Þetta samkomubann er sett til að verja líf. Ekki sækja um undanþágur. Það kemur betri tíð,“ sagði hann.

Auður Inga segir ljóst að sumir telji sig undanþegna banninu. „Bæði hefur fólk hringt í okkur í þjónustumiðstöð UMFÍ og sent okkur myndir af æfingahópum. Það er miður enda mikilvægt að við snúum öll bökum saman í baráttunni til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar. Við verðum að gera þetta saman,“ segir hún.
Athugasemdir
banner
banner
banner