Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 28. mars 2020 22:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Við erum enn í uppnámi" - Recber greinist með veiruna
Mynd: Getty Images
Fyrrum markvörður Fenerbahce, Besiktas og Barcelona, Rustu Recber er á spítala. Samkvæmt eiginkonu Recber fékk hann snögglega einkenni kórónaveirunnar og var niðurstaðan jákvæð þegar hann var prófaður.

Tyrkneska goðsögnin var flýtt á sjúkrahús í dag. Recber, sem er 46 ára, er landsleikjahæsti Tyrki sögunnar en hann lék á sínum tíma 120 leiki fyrir þjóð sína.

„Ég væri til í að færa ykur betri fréttir en ég mér þykir leiðinlegt að segja frá því að eiginmaður minn er kominn á sjúkrahús og var greindur með Covid-19," stendur í færslu eiginkonu Recber á Instagram.

„Allt var í góðu þangað til hann skyndilega fékk einkennin og við erum enn í uppnámi. Þetta eru erfiðir tímar."

Í Tyrklandi hafa tæplega 7500 mannst verið staðfestir með veiruna og ríflega 100 manns hafa dáið vegna hennar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner