Fotbolti.net
28.06.20 - 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Inter kom til baka gegn Parma

Hinn 21 árs gamli Alessandro Bastoni skoraði sitt annað mark fyrir Inter.

Hinn 21 árs gamli Alessandro Bastoni skoraði sitt annað mark fyrir Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

Parma 1 - 2 Inter
1-0 Gervinho ('15)
1-1 Stefan de Vrij ('84)
1-2 Alessandro Bastoni ('87)
Rautt spjald: Juraj Kucka, Parma ('85)
Parma tók á móti Inter í síðasta leik 28. umferðar ítölsku deildarinnar og skoraði Gervinho fyrsta mark leiksins eftir stundarfjórðung.

Hann lék þá á varnarmann Inter og skoraði laglegt mark eftir stórkostlega sendingu frá Juraj Kucka.

Inter náði ekki að jafna í fyrri hálfleik en lærisveinar Antonio Conte tóku stjórn á leiknum í seinni hálfleik.

Skyndisóknir Parma voru þó stórhættulegar og gestirnir frá Mílanó sluppu nokkrum sinnum með skrekkinn bæði fyrir og eftir leikhlé.

Jöfnunarmarkið kom ekki fyrr en á 84. mínútu þegar Stefan de Vrij skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Í kjölfarið átti Kucka orðaskipti við dómarann og fékk beint rautt spjald.

Tveimur mínútum síðar átti Victor Moses fyrirgjöf sem rataði á kollinn á varnarmanninum efnilega Alessandro Bastoni sem skoraði úr auðveldu færi.

Inter verðskuldaði sigurinn og er í þriðja sæti, átta stigum eftir toppliði Juventus þegar tíu umferðir eru eftir.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.