Fotbolti.net
28.06.26 - 00:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skotar úr leik - Þjálfarinn segir af sér

Skotar úr leik - Þjálfarinn segir af sér
Canon

Mynd: EPA

Steve Clarke hefur sagt af sér sem landsliðsþjálfari Skota eftir að liðið féll úr leik á HM.

Skotland hafnaði í 3. sæti C-riðils með þrjú stig eftir sigur á Haítí en liðið tapaði gegn Brasilíu og Marokkó. Það var ljóst eftir tap Gana gegn Króatíu í kvöld að Skotland er úr leik.
Clarke hefur vakið mikla athygli fyrir viðtöl eftir leikina gegn Brasilíu og Marokkó. Hann hefur verið mjög þver og leiðinlegur. Hann sagði eftir tapið gegn Brasilíu í lokaumferðinni að liðið væri líklega úr leik og nú er það staðfest.

Skotland mætti Brasilíu á miðvikudaginn og liðið þurfti að treysta á að nokkur úrslit yrði þeim í hag en leikur Gana og Króatíu gerði endanlega útslagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.