Fotbolti.net
28.08.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Stefan Ljubicic spáir í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Stefan Alexander Ljubicic.

Stefan Alexander Ljubicic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Önnur umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í kvöld. Við fengum Stefan Alexander Ljubicic, sóknarmann Keflavíkur, til að spá í spilin fyrir leikina sem eru framundan.
Crystal Palace 0 - 3 Man City (19:00 í kvöld)
Haaland er orðinn léttari eftir klippinguna og nær hinni fullkomnu þrennu! Palace-menn eru með nýjan þjálfara og þeirra besti maður, Big Mateta, vill ólmur yfirgefa félagið, sem er slæmt fyrir ágætt lið Palace.

Liverpool 0 - 1 Nottingham Forest (11:30 á morgun)
Sem United-maður vil ég aldrei spá Liverpool-sigri og ég ætla að halda því áfram. Minn maður, Murillo, tekur einhvern svakalegasta skalla sem enska úrvalsdeildin hefur séð sem syngur í netinu! Delap kemur sterkur inn og fær gullið tækifæri til þess að æsa Liverpool-menn og fær annaðhvort appelsínugult eða rautt spjald.

Bournemouth 1 - 1 Everton (14:00 á morgun)
Þetta verður þannig leikur að maður byrjar að skrolla á TikTok eftir svona 17 mínútur. Rayan skorar fyrir Bournemouth strax eftir um 20 mínútna leik. Tarkowski skorar eftir klafs í teig og VAR þarf þrjú korter til þess að komast að niðurstöðu.

Coventry 1 - 3 Hull City (14:00 á morgun)
Ollie McBurnie, þrenna! Hull eru skemmtilegir og þeir verða ekki í miklum vandræðum þetta tímabilið. McBurnie er lykilmaður í þessu liði og hann mun eiga sitt besta tímabil í ár.

Tottenham 2 - 1 Newcastle (16:30 á morgun)
Ég er spenntur fyrir Tottenham. Maður hefur alltaf trú á þeim en þeir ná alltaf að eyðileggja trúna eftir þrjá leiki í deildinni. Þeir hafa verið duglegir á markaðnum og náð í klassa leikmenn sem vonandi slá í gegn í þetta skiptið. Savinho verður á eldi, sýnir samba-takta og klobbar fjóra í þessum leik. Newcastle-menn eru með veikara lið og misstu sinn besta mann einmitt til Tottenham. Fyrrum United-maðurinn Elanga skorar.

Chelsea 3 - 2 Brighton (13:00 á sunnudag)
Chelsea eru með sturlað lið og eru með tvo bestu vini og sömuleiðis bestu leikmenn liðsins, Palmer og Rogers. Þeir taka fagnaðinn sinn saman báðir tveir eftir sín mörk. Chelsea komast í 2-0 og allt lítur vel út, sem þýðir auðvitað að Chelsea þarf að gera þetta eins erfitt og mögulegt er. Brighton jafnar og Stamford Bridge verður eins og bókasafn. Palmer klárar leikinn eftir vítaspyrnu.

Leeds 0 - 2 Brentford (13:00 á sunnudag)
Brentford er næstuppáhaldsliðið mitt í þessari deild. Þeir eru með geggjaðan framherja og hann mun skora huggulegt mark. Leeds endar á því að vera með 70% possession og hátt xG, en markatalan mun ennþá standa í 0.

Sunderland 2 - 3 Fulham (13:00 á sunnudag)
Sunderland byrjar þennan leik eins og þeir séu að fara að vinna deildina. Stuðningsmenn syngja þangað til skellurinn kemur á 9. mínútu og þeir lenda 0-1 undir. Þeir koma til baka og leiða 2-1 á 75. mínútu. Þá fer Fulham á næsta level og klárar leikinn 2-3! Arbeloa framlengir samninginn sinn eftir leikinn.

Man Utd 3 - 0 Ipswich (15:30 á sunnudag)
JEMINN! Hvar á ég að byrja með þetta lið sem ég elska! Við fengum skell í síðasta leik á móti nýliðum en það gerist ekki aftur. Ég er þó bjartsýnn á að þetta verði þægilegir þrír punktar og Rashford kemst á blað. Bruno verður með þrjár stoðsendingar. Ed Sheeran klappar fyrir frammistöðu fyrirliða míns.

Aston Villa 1 - 3 Arsenal (19:00 á mánudag)
Arsenal er með fáránlegan hóp! Uppáhaldsleikmaður minn í dag er Tzolis og það er snilld að horfa á hann spila fótbolta! Hann verður með mark eða stoðsendingu. Ég veit ekkert hvað ég get sagt um Aston Villa… Emi Martínez farinn, Ezri Konsa farinn og spurning hvað gerist með Ollie Watkins. Þeir hafa þó styrkt sig, en það er ekki hægt að segja hvernig þetta verður hjá þeim. Það þarf ekki að segja mikið um Arsenal – þeir eru því miður með besta hóp deildarinnar í dag.

Fyrri spámenn:
Gunni Birgis (5 réttir)
Haaland skoraði ekki í fyrstu umferð, hann hlýtur að skora núna.

Haaland skoraði ekki í fyrstu umferð, hann hlýtur að skora núna.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool og Nottingham Forest mætast.

Liverpool og Nottingham Forest mætast.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea fagnar marki.

Chelsea fagnar marki.

Canon

Mynd: EPA

Hvað gerir Man Utd eftir tap í fyrsta leik?

Hvað gerir Man Utd eftir tap í fyrsta leik?

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.