28.10.26 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sveinn Elías: Svo stoltur af þjálfarateyminu mínu að þora þessu

Siggi Höskulds og Eiður Ben.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir 2. flokks strákar byrjuðu síðustu fjóra leikina.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Siggi Höskulds og Eiður Ben.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt gögnum á ordio.is er hlutfall spilaðra mínútna hjá uppöldum leikmönnum í Bestu deildinni 77% hjá Þór. Það er það hæsta í deildinni en Breiðablik er í öðru sæti með 63%.
Liðið var að meðaltali með 8,3 uppalda leikmenn í byrjunarliði sínu og næst yngsta meðalaldurinn á byrjunarliði í deildinni. Einungis FH tefldi fram yngra byrjunarliði að meðaltali.
Alls komu 23 uppaldir Þórsarar við sögu með liðinu á tímabilinu. Þór hélt sæti sínu í deildinni með því að vinna síðustu þrjá leiki sína í deildinni.
Fótbolti.net ræddi við formann fótboltadeildar Þórs, Svein Elías Jónsson, um uppöldu leikmennina.

„Það er náttúrulega ótrúlegt (að 23 uppaldir leikmenn hafi spilað á tímabilinu), en það er alveg dásamlegt. Ég er svo stoltur af þjálfarateyminu mínu að þora þessu. Verandi í þessa stöðu, sérstaklega eftir landsleikjahléið. Þá var alveg ljóst að við mættum ekkert misstíga okkur það sem eftir var af tímabilinu. Þá var fjórum 2. flokks strákum stillt upp í byrjunarliðinu. Siggi var grjótharður og sannfærði mig um að þetta væri liðið sem myndi vinna leikinn og bakkaði það upp."
„En það er ljóst að ungu strákarnir okkar spiluðu meira en við stefndum að í sumar. Við ætluðum að vera með fleiri reynslumeiri leikmenn til taks. Atli Sigurjóns var mikið frá, hann er uppalinn Þórsari, og hann átti að vera í fleiri mínútum með sína reynslu. Þetta pínu spilaðist svona óvart en á sama tíma þarf að hafa þor til að setja þessa stráka inn á völlinn," segir Sveinn Elías.
„En það er ljóst að ungu strákarnir okkar spiluðu meira en við stefndum að í sumar. Við ætluðum að vera með fleiri reynslumeiri leikmenn til taks. Atli Sigurjóns var mikið frá, hann er uppalinn Þórsari, og hann átti að vera í fleiri mínútum með sína reynslu. Þetta pínu spilaðist svona óvart en á sama tíma þarf að hafa þor til að setja þessa stráka inn á völlinn," segir Sveinn Elías.

Fjórir 2. flokks strákar byrjuðu síðustu fjóra leikina.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Ordio/skjáskot