Fotbolti.net
29.01.25 - 09:24
Elvar Geir Magnússon

Margir lykilmenn Liverpool hvíldir

Salah er meðal leikmanna sem fá hvíld.

Salah er meðal leikmanna sem fá hvíld.

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaumferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar fer fram í kvöld. Liverpool trónir á toppnum og er búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum. Arne Slot stjóri Liverpool notar tækifærið og hvílir menn í útileiknum gegn PSV Eindhoven í kvöld.

Níu aðalliðsleikmenn voru eftir heima; Alisson, Virgil van Dijk, Ibrahima Konate, Trent Alexander-Arnold, Ryan Gravenberch, Alexis Mac Allister, Dominik Szoboszlai, Mo Salah og Luis Díaz.

Það eru margir ungir leikmenn í leikmannahópi Liverpool. Nokkrir úr teyminu hjá Slot munu fljúga strax eftir leik í kvöld til Liverpool og stýra æfingu í fyrramálið fyrir þá leikmenn sem ekki ferðuðust til Eindhoven.
Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar
TENGT EFNI

Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar

„Allir leikmennirnir sem voru skildir eftir heima hefðu getað spilað leikinn. Ef það gefst tækifæri til að halda mönnum ferskum þá nýtum við það," segir Slot.

Það er öruggt að Liverpool endar í fyrsta eða öðru sæti deildarinnar, eitt stig tryggir toppsætið.

„Það skiptir engu máli hvort við endum númer eitt eða tvö. Á endanum verður dregið um mótherja. Við munum auðvitað gera allt sem við getum til að vinna leikinn."

Hópurinn hjá Liverpool:

Markverðir: Kelleher, Jaros, Davies

Varnarmenn: Quansah, Nallo, Bradley, Robertson, Tsimikas, Norris, Mabaya

Miðjumenn: Endo, Elliott, McConnell, Morton, Nyoni, Morrison

Sóknarmenn: Gakpo, Nunez, Chiesa, Danns, Kone-Doherty
Arne Slot.

Arne Slot.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1PSG1+53
2Bayern1+53
3Barcelona1+43
4Man Utd1+43
5Como1+33
6Stuttgart1+23
7Sporting1+23
8Man City1+23
9Aston Villa1+13
10Lens1+13
11Betis1+13
12Dortmund1+13
13Liverpool1+13
14Real Madrid1+13
15Arsenal1+13
16AEK1+13
17Roma101
18Shakhtar D101
19PSV101
20Fenerbahce101
21Villarreal1-10
22Lille1-10
23Slavia Prag1-10
24Club Brugge1-10
25Inter1-10
26Atletico Madrid1-10
27Napoli1-10
28LASK Linz1-10
29Viking FK1-20
30Galatasaray1-20
30Sparta Prag000
31Porto1-20
32RB Leipzig1-30
33Feyenoord1-40
34Sabah FK1-40
35Slovan1-50
36Bodö/Glimt1-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.