Um helgina var fjallað um að Róbet Orri Þorkelsson væri að ganga í raðir danska félagsins SönderjyskE. Róbert kom til móts við liðið í æfingaferð þess á Alicante.
Í frétt Tipsbladet er sagt að stefnt hefði verið að því að semja en ekkert varð úr því að skrifað yrði undir samning.
Sagt er frá því að SönderjyskE leiti nú annað að miðverði fyrir komandi átök. SönderjyskE kynnti í dag að varnarmaðurinn Matti Olsen væri kominn til félagsins frá Hvidövre.

Róbert Orri, sem er 22 ára örvfættur miðvörður, er án félags eftir að samningur hans við Montreal í Kanada rann út. Hann lék á láni með Kongsvinger í norsku B-deildinni á síðustu leiktíð og þótti standa sig vel.
Það verður fróðlegt að sjá hvað tekur við næst hjá Róberti Orra sem var fyrr í vetur orðaður við Bryne í Noregi, áframhaldandi veru hjá Kongsvinger og endurkomu til Breiðabliks í Bestu deildinni.
Athugasemdir