Fotbolti.net
29.02.20 - 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Þriðji sigur Napoli í röð

Gattuso átti erfitt uppdráttar þegar hann tók fyrst við Napoli en nú hefur staðan breyst.

Gattuso átti erfitt uppdráttar þegar hann tók fyrst við Napoli en nú hefur staðan breyst.

Canon

Mynd: Getty Images

Napoli 2 - 1 Torino
1-0 Kostas Manolas ('19)
2-0 Giovanni Di Lorenzo ('82)
2-1 Simone Edera ('91)
Lærisveinar Gennaro Gattuso í Napoli eru á góðu skriði og voru að vinna sinn þriðja deildarleik í röð.

Í kvöld fékk liðið heimsókn frá Torino og skoraði gríski miðvörðurinn Kostas Manolas fyrsta mark leiksins með skalla eftir aukaspyrnu Lorenzo Insigne.

Napoli stjórnaði gangi mála nánast allan leikinn og tvöfaldaði Giovanni Di Lorenzo forystuna eftir fyrirgjöf frá Dries Mertens á 82. mínútu.

Gestirnir lifnuðu við undir lokin og náði Simone Edera að minnka muninn í uppbótartíma. Nær komust gestirnir þó ekki og verðskuldaður sigur Napoli staðreynd.

Napoli er í sjötta sæti deildarinnar, aðeins sex stigum frá Meistaradeildarsæti.

Þetta var sjötti tapleikur Torino í röð og er liðið aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Roma11+2127
3Inter10+1325
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone11+920
7Juventus10+317
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli10+414
11Torino11-214
12Genoa10-413
13Atalanta10-411
14Lecce11-1010
15Parma11-88
16Fiorentina10-88
17Sassuolo11-138
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.