Fotbolti.net
29.03.20 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Allt í góðu að mati Gundogan að gefa Liverpool titilinn

Ilkay Gundogan.

Ilkay Gundogan.

Canon

Mynd: Getty Images

Ilkay Gundogan, miðjumaður Manchester City, segir það allt í lagi sín vegna að Liverpool fái enska úrvalsdeildartitilinn eins og staðan er núna.

Liverpool er með 25 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar liðið á eftir níu leiki. Núna er hins vegar hlé á deildinni vegna kórónuveirunnar.
Nú er óvissa með framhaldið hvenær deildin getur hafist aftur, en sumir hafa kallað eftir því að deildinni verði aflýst. Ef að deildinni yrði aflýst þá væri það allt í lagi að mati Gundogan að gefa Liverpool titilinn.

Gundogan, sem leikur með helstu keppinautum Liverpool í Man City, segir við ZDF í Þýskalandi: „Það væri allt í lagi mín vegna (ef Liverpool fengi bara titilinn)."

Gundogan segir jafnframt að það sé erfitt að takast á við þetta ástand. „Þetta er ótrúleg staða og það er erfitt að átta sig á þessu. Þú er stundum hræddur um að fara í göngutúr í 10-15 mínútur."

Hér að neðan má sjá hvernig staðan er í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.