29.07.26 - 20:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Evrópa: Tómas Óli skoraði í ótrúlegri endurkomu gegn Gísla Gotta

Tómas Óli

Mynd: AGF

Tómas Óli

Mynd: AGF
AGF vann ótrúlega dramatískan sigur á Lech Poznan í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Liðin mættust á heimavelli Poznan í Póllandi. Fyrri leiknum lauk með 4-1 sigri pólska liðsins í Danmörku.
Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði AGF en hinn 18 ára gamli Tómas Óli Kristjánsson byrjaði á bekknum. Gísli Gottskálk Þórðarson byrjaði á bekknum hjá Poznan.
Staðan var 3-0 fyrir AGF eftir venjulegan leiktíma og það þurfti því að framlengja. Poznan minnkaði muninn en Tómas Óli kom inn á og kom AGF í 4-1 og leikurinn fór í vítaspyrnukeppni. Gísli kom einnig inn á í framlengingunni.
AGF vann 4-3 í vítaspyrnukeppninni og Tómas Óli skoraði. AGF mætir Sabah Baku í næstu umferð.
FC Kaupmannahöfn er komið áfram í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Polissya Zhytomyr frá Úkraínu. Fyrri leiknum lauk með 3-3 jafntefli.
Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen sátu allan tímann á bekknum en Viktor Bjarki Daðason er fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Lech Poznan 1 - 4 AGF (3-4 í vító)
0-1 Tobias Bech ('32 )
0-2 Kristian Arnstad ('55 , víti)
0-3 Frederik Tingager ('75 )
1-3 Filip Jagiello ('95 )
1-4 Tomas Kristjansson ('100 )
FC Kobenhavn 2 - 1 Polessya
1-0 Mohamed Elyounoussi ('27 , víti)
2-0 Robert ('61 )
2-1 Mykola Gayduchyk ('90 )
Rautt spjald: Junnosuke Suzuki, FC Kobenhavn ('46)