29.07.26 - 11:14
Elvar Geir Magnússon
Leikur allt á reiðiskjálfi og Evrópa gæti sniðgengið HM

Infantino ásamt Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ. Myndin var tekin 2024.

Mynd: KSÍ

Aleksander Ceferin ræðir við Þorvald.

Mynd: KSÍ

Infantino og Trump forseti með bikarinn.

Mynd: EPA

Infantino og Ceferin.

Áætlanir Gianni Infantino, forseta FIFA, um að hleypa fjárfestum að HM í fótbolta og fleiri innviðum sambandsins hafa hlotið gríðarlega harkaleg viðbrögð og mikla gagnrýni.
UEFA, fótboltasamband Evrópu, hefur boðað til neyðarfundar með aðildarsamböndum sínum vegna málsins en það hefur neistað milli FIFA og UEFA í nokkurn tíma. Athygli vakti að Aleksander Ceferin, forseti UEFA, mætti ekki á úrslitaleik HM.

TENGT EFNI
Andar köldu milli Ceferin og Infantino
Alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur lýst því yfir að það vilji stofna viðskiptatengt dótturfélag til að sjá um helstu viðburði sína og að utanaðkomandi fjárfestar muni geta keypt hlut í félaginu.
Komið hefur í ljós að margir af æðstu stjórnendum fótboltans vissu ekki af þessum áætlunum, þar á meðal minnsta kosti tveir af átta varaforsetum FIFA.
Heimsmeistaramótið er ekki söluvara
UEFA hefur þegar lýst yfir mótmælum þrátt fyrir að áætlanir FIFA hafi ekki verið opinberaðar. Evrópska sambandið segir að verið sé að fara yfir mörk og hyggst á neyðarfundinum grípa til aðgerða.
Enska fótboltasambandið hefur lýst yfir áhyggjum og nýr forsætisráðherra Bretlands, Andy Burnham, gagnrýnir Infantino harðlega.
„Heimsmeistaramótið er ekki söluvara; það er stærsta keppni í íþróttaheiminum. Fótboltinn tilheyrir stuðningsmönnunum – það hefur hann alltaf gert og mun alltaf gera," skrifaði Burnham á samfélagsmiðilinn X.
Concacaf sambandið, sem Norður- og Mið-Ameríka er undir, hefur einnig lýst yfir áhyggjum en þar var HM haldið í sumar.
Myndi gengisfella keppnina
Fjölmiðlar segja að viðbrögð UEFA gæti orðið það hörð að sambandið ákveði að sniðganga HM. Það myndi augljóslega gengisfella keppnina gríðarlega en sex af liðunum í 8-liða úrslitum HM í ár komu frá Evrópu, þar á meðal Spánn sem vann svo mótið.
Fjallað hefur verið um umdeildar hugmyndir FIFA um að halda áfram að stækka HM og að næsta skref sé að mótið muni innihalda 64 lið. UEFA er mótfallið því.
Ceferin hefur verið duglegur við að gagnrýna vinnubrögð FIFA, þar á meðal það þegar leikbann bandaríska sóknarmannsins Folarin Balogun var fellt niður í kjölfar þess að Donald Trump hringdi í Infantino.