Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
banner
   mið 29. ágúst 2018 15:09
Elvar Geir Magnússon
Gunnhildur Yrsa: Vanar því að spila stóra leiki
Icelandair
Kvennalandsliðið æfir á Laugardalsvelli í þessum skrifuðu orðum en Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir landsliðskona ræddi við Fótbolta.net fyrir æfinguna.

Uppselt er á stórleikinn gegn Þýskalandi á laugardaginn en Ísland er í harðri baráttu um að komast á HM í Frakklandi.

„Það er glæsilegt að það sé uppselt og hvað íþróttir eru orðnar stór hluti af íslensku samfélagi. Vonandi heldur mætingin svona áfram í öllum íþróttum, karla- og kvenna," segir Gunnhildur Yrsa.

„Ég held að spennustigið í liðinu sé gott. Við erum allar vanar því að spila svona stóra leiki og kunnum að halda okkur á rétta spennustiginu."

Ísland vann frækinn sigur í Þýskalandi og liðið trúir því að það geti unnið þýska liðið aftur.

„Það skemmtilega við íþróttir eru að allt getur gerst. Við ætlum bara að einbeita okkur að því að spila okkar besta leik. Við þurfum að spila þéttan varnarleik."

Gunnhildur Yrsa hefur verið að spila vel fyrir Utah Royals í Bandaríkjunum en í viðtalinu sem sjá má hér að ofan er einnig rætt um gengi hennar þar.

Staðan fyrir leikinn við Þjóðverja
Sigur á Þýskalandi = Ísland beint á HM
Jafntefli gegn Þýskalandi = Ísland þarf sigur á Tékkum til að fara á HM
Tap gegn Þjóðverjum = Ísland þarf sigur á Tékkum til að fara í umspil
Slapp
banner
banner