Fotbolti.net
29.09.22 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Andri Fannar á Mihajlovic mikið að þakka - „Leiðinlegar fréttir"

Andri Fannar á Mihajlovic mikið að þakka - „Leiðinlegar fréttir"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Fannar Baldursson spilaði frábærlega með u21 árs landsliðinu í leikjunum gegn Tékkum í vikunni.

Þessi tvítugi miðjumaður er á láni hjá NEC í Hollandi frá ítalska liðinu Bologna. Sinisa Mihajlovic fyrrum stjóri Bologna var rekinn fyrr í þessum mánuði en Andri á honum mikið að þakka.

„Auðvitað leiðinlegar fréttir. Ég skil smá ákvörðunina, hann er búinn að vera mikið fjarverandi og á háum launum. Árangurinn ekki alveg eins og þeir vildu, búið að eyða miklu í þetta," sagði Andri.

„Svona er þessi fótbolti, harður og ekki alltaf sanngjarn. Þetta er leiðinlegt fyrir mig því þessi þjálfari gaf mér sénsinn í Serie A og ég á honum helling að þakka."

Það eru miklar breytingar á teyminu hjá Bologna en Andri segist ekki hafa rætt við nýja teymið. Thiago Motta er nýr stjóri liðsins.

„Sjáum hvað gerist eftir tímabilið í Hollandi, hvort ég fari aftur til Bologna. Við tökum bara stöðuna, ég er ekkert að stressa mig á því," sagði Andri að lokum.

Andri Fannar: Veit hvað ég get og þarf að reyna sýna það oftar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.