Fotbolti.net
29.10.26 - 10:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Brynjólfur orðaður við Birmingham

Brynjólfur hefur spilað virkilega vel með Groningen á tímabilinu.

Brynjólfur hefur spilað virkilega vel með Groningen á tímabilinu.

Canon

Mynd: EPA

Brynjólfur Andersen Willumsson er einn af þeim sem staðarmiðillinn Birminghammail orðar við félagið. Birmingham gæti fengið inn framherja í glugganum og hefur Brynjólfur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með Groningen í hollensku úrvalsdeildinni.

Birmingham er í næstefstu deild Englands og einn heitasti framherji deildarinnar, Andri Lucas Guðjohnsen, er einnig orðaður við félagið. Andri Lucas og Brynjólfur eru samherjar í íslenska landsliðinu.
Birmignham þekkir það að vera með Willumsson í liðinu því Willum Þór, eldri bróðir Brynjólfs, var í lykilhlutverki þegar liðið fór upp úr C-deildinni en hlutverkið minnkaði í B-deildinni. Willum er núna hjá NEC Nijmegen.

„Fólk ætti að þekkja föðurnafnið. Hann er yngri bróðir Willums. Hann hefur verið hjá Groningen síðan 2024 og er markahæsti leikmaður í Eredivisie á þessu tímabili."

„Hann er 26 ára og var inn og út úr liðinu fyrstu tvö tímabilin en hann hefur verið að raða inn mörkum á þessu tímabili, með átta mörk í tíu byrjunarliðsleikjum. Það er rætt um að hann gæti orðið fyrsti leikmaður Groningen til að skora 20 mörk í fjóra áratugi."

„Framherjinn verður samningslaus næsta sumar, en Groningen er reyndar með ákvæði. Það hefur ekki alltaf gengið upp að fá leikmenn frá Hollandi en yngri Willumsson er allavega í mjóg góðum gír,"
segir í umfjöllun enska miðilsins.

Brynjólfur hefur skorað fjögur mörk í leikjunum þremur eftir landsleikjahlé og er það í annað sinn á tímabilinu sem hann hefur skorað í þremur leikjum í röð. Brynjólfur og Daninn Sören Tengstedt hjá Go Ahead Eagles eru markahæstir í deildinni með átta mörk.

Það sem sagt er um Andra Lucas er að líklega geti Birmingham ekki fengið hann, hann muni kosta háa upphæð þar sem hann hafi þegar sannað sig í deildinni. Birmingham situ í 7. sæti Championship, með 20 stig eftir tólf umferðir.
Brynjólfur orðaður við Birmingham
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+323
3West Ham12+1722
4Wolves12+421
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7Birmingham12+820
8QPR12+820
9Stoke City12+220
10Blackburn12+318
11Portsmouth12+118
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Bristol City12-315
15Lincoln City12-715
16Cardiff City12+214
17Wrexham12-314
18Bolton12-714
19Charlton Athletic12-714
20Norwich12-212
21Watford12-1011
22Burnley12-88
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.