Fotbolti.net
29.11.24 - 22:46
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Tvö rauð er Sheffield United fór á toppinn - Fyrsta mark Davies í meira en þrjú ár

Tom Davies var óvænt hetja heimamanna

Tom Davies var óvænt hetja heimamanna

Canon

Mynd: Sheffield United

Sheffield Utd 1 - 0 Sunderland
0-0 Patrick Roberts ('29 , Misnotað víti)
1-0 Tom Davies ('83 )
Rautt spjald: ,Chris Mepham, Sunderland ('40)Harry Souttar, Sheffield Utd ('45)
Sheffield United kom sér á toppinn í ensku B-deildinni í kvöld með því að vinna Sunderland, 1-0, í dramatískum leik á Bramall Lane.

Bæði lið hafa verið að slást um toppsætin í deildinni á þessari leiktíð en aðeins tvö stig voru á milli þeirra fyrir leikinn.

Patrick Roberts, leikmaður Sunderland, gat komið gestunum í forystu á 29. mínútu er liðið fékk vítaspyrnu en Michael Cooper, markvörður Sheffield United, varði spyrnuna.

Rúmum tíu mínútum síðar fékk Chris Mepham, varnarmaður Sunderland að líta rauða spjaldið, er hann braut á Tyrese Campbell sem var að sleppa í gegn. Nokkrum mínútum síðar var jafnt í liðum er Harry Souttar fékk sitt annað gula spjald fyrir að toga í Wilson Isidor.

Fjörugur fyrri hálfleikur en það vantaði aðeins upp á það í þeim síðari.

Áhorfendur fengu að minnsta kosti eitt mark og kom það úr óvæntri átt en varamaðurinn Tom Davies gerði það þegar sjö mínútur voru eftir. Fyrsta mark hans í meira en þrjú ár!

Góður sigur hjá Sheffield United sem er komið á toppinn með 38 stig en Sunderland í 4. sæti með 33 stig eftir átján leiki.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Birmingham14+1326
3Swansea14+526
4Stoke City14+526
5West Brom14+525
6Southampton14+1524
7Wolves13+724
8West Ham13+1522
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City13-218
16Bolton14-717
17Lincoln City14-1015
18Cardiff City13-114
19Wrexham13-414
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.