Fotbolti.net
30.03.21 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo nálgast markamet Ali Daei - Kominn með 103 mörk

Cristiano Ronaldo er kominn með 103 mörk

Cristiano Ronaldo er kominn með 103 mörk

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo skoraði 103. mark sitt fyrir landsliðið í 3-1 sigri á Lúxemborg í kvöld en hann nálgast markametið sem er í eigu Ali Daei.
Ali Daei skoraði 109 mörk í 149 landsleikjum með Íran frá 1993 til 2006 og hefur engum tekist að ógna metinu hans hingað til.

Ronaldo nálgast metið þó en hann skoraði loksins fyrir Portúgal í 3-1 sigrinum í kvöld.

Hann hafði ekki skorað í 415 mínútur fram að markinu en er nú kominn með 103 mörk.

Ronaldo þarf því aðeins sjö mörk til viðbótar til að bæta met Daei og getur vel farið svo að hann nái því markmiði á Evrópumótinu í sumar en liðið spilar fimm leiki frá 4. - 23. júní og þá eftir að taka útsláttarkeppnina inn í myndina eftir portúgalska liðið kemst upp úr riðlinum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.