Fotbolti.net
30.04.21 - 15:30
Ívan Guðjón Baldursson

Klopp: Þetta er leikurinn - United hefur trú á titlinum

Klopp: Þetta er leikurinn - United hefur trú á titlinum
Canon

Mynd: Getty Images

Jürgen Klopp er gríðarlega spenntur fyrir stórleik helgarinnar þar sem Manchester United tekur á móti Liverpool.
Rauðu djöflarnir eru í öðru sæti deildarinnar, þrettán stigum fyrir ofan Liverpool. Lærisveinar Klopp þurfa sigur í Evrópubaráttunni á meðan Man Utd á enn agnarsmáa möguleika á að stela titlinum af nágrönnum sínum í Manchester City.

Klopp býst þó við því að leikmenn United telji sig enn eiga möguleika á titlinum og mæti því sérstaklega grimmir til leiks.

„Það skiptir ekki máli hvað er að gerast í kringum þig, þegar þú ert leikmaður eða þjálfari hjá Liverpool þá er þetta leikurinn," sagði Klopp.

„Þetta er besti staðurinn til að fara á eftir að hafa séð þá skora fimm mörk í einum hálfleik. Það getur allt gerst, við verðum að vera undirbúnir.

„Við þurfum að vinna þennan leik, meira en 100%. Við missum af Evrópukeppnum ef við vinnum ekki leiki. Þetta verður mjög erfiður leikur.

„Við sáum í gær hvað Man Utd getur gert. Þeir voru á flugi. Ég er nokkuð viss um að United hefur enn trú á titlinum og því munu bæði lið gera allt til að sigra."


Liðin eigast við á sunnudaginn klukkan 15:30.
Klopp: Þetta er leikurinn - United hefur trú á titlinum
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.