Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. júlí 2021 15:00
Elvar Geir Magnússon
Fær Xhaka nýjan samning hjá Arsenal?
Granit Xhaka.
Granit Xhaka.
Mynd: EPA
Arsenal ku vera tilbúið að bjóða svissneska miðjumanninum Granit Xhaka nýjan samning en Roma hefur ekki gengið að kröfum félagsins.

Xhaka hefur verið orðaður við Roma í allt sumar en Athletic segir að frammistaða hans á EM hafi lyft upp verðmiða Arsenal.

Sjálfur ýjaði leikmaðurinn að því að hann væri á leið í ítalska félagið en nú er sagt að Arsenal sé tilbúiðað bjóða honum nýjan samning.

Það hefur ekki komið tilboð frá Roma sem Arsenal sættir sig við en Xhaka á tvö ár eftir af núgildandi samningi sínum.

Þessi reynslumikli miðjumaður hefur spilað 220 mótsleiki síðan hann kom til Arsenal 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner