Ensk götublöð greina frá því í dag að Chelsea sé búið að lækka verðmiðann á framherjanum Tammy Abraham.
Chelsea reynir mikið að losna við þennan öfluga framherja sem er ekki inni í myndinni hjá Thomas Tuchel.
Verðmiðinn á Abraham var 40 milljónir punda í sumar en Englendingurinn kostar nú 35 milljónir samkvæmt nýjustu fregnum.
Arsenal er að skoða sig um á framherjamarkaðnum en óvíst er hvað verður um Eddie Nketiah og Alexandre Lacazette.
Arsenal vill þó helst fá Abraham á láni á meðan Chelsea vill selja.
Félagaskiptaglugginn á Englandi lokar ekki fyrr en í næsta mánuði og geta félög enn beðið og séð hvort verðmiðinn lækki enn frekar.
Athugasemdir