Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. júlí 2022 14:54
Ívan Guðjón Baldursson
Cucurella ekki með gegn Espanyol
Mynd: EPA

Brighton er að spila æfingaleik við Espanyol þessa stundina og er spænski bakvörðurinn Marc Cucurella ekki í leikmannahópinum.


Cucurella er búinn að biðja um sölu frá Brighton þar sem hann vill ganga í raðir Manchester City, en Brighton hafnaði 30 milljón punda tilboði frá Englandsmeisturunum á dögunum.

Cucurella missti einnig af síðasta æfingaleik Brighton sem var 0-1 tap gegn Brentford.

Brighton vill 50 milljónir fyrir Cucurella sem á fjögur ár eftir af samningi sínum við félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner