Fotbolti.net
30.09.22 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nkunku gekkst undir læknisskoðun hjá Chelsea

Christopher Nkunku.

Christopher Nkunku.

Canon

Mynd: EPA

Franski landsliðsmaðurinn Christopher Nkunku gekkst undir læknisskoðun hjá Chelsea áður en félagaskiptaglugginn lokaði fyrir um mánuði síðan.

Bild greinir frá þessu og ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano tekur undir það.
Chelsea er að undirbúa það að kaupa Nkunku næsta sumar þegar hann verður með riftunarverð í samningi sínum hjá RB Leipzig.

Riftunarverðið hljóðar upp á 60 milljónir evra sem er ansi gott verð fyrir þennan öfluga leikmann.

Chelsea er búið að bjóða þessum fjölhæfa leikmanni langtímasamning, en það er eitthvað í land ennþá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.