Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. október 2020 21:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Mail 
Rúnar Alex: Eðlilegt þegar þú spilar fyrir félag á borð við Arsenal
Rúnar í markinu í gær.
Rúnar í markinu í gær.
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Arsenal, er til viðtals hjá Daily Mail í dag. Rúnar lék í gærkvöldi sinn fyrsta leik fyrir Arsenal en hann gekk í raðir félagsins í haust. Rúnar hélt hreinu gegn Dundalk þegar Arsenal vann 3-0 sigur.

„Ég held það sé eðlilegt þegar þú spilar fyrir félag á borð við Arsenal," sagði Rúnar aðspurður hvort hann þurfi að halda einbeitingu þegar það reynir ekki mikið á hann. Dundalk átti eitt skot að marki Arsenal sem Rúnar varði.

„Við höldum boltanum mikið og það verða margir leikir eins og þessir. En þú verður að halda einbeitingu því það munu koma eitt eða tvö færi og ég var heppinn að fá þetta á mig snemma leiks, það gaf mér góða byrjun. Ég held að svona verði myndin í mörgum leikjum Arsenal, sagði Rúnar.

„Ég er stoltur af því að hafa náð að þreyta frumraun mína og ég er stoltur af liðinu að ná í mjög góðan sigur. Allir leikir í Evrópu eru erfiðir svo þetta eru mjög góða úrslit."


Athugasemdir
banner
banner
banner