Fotbolti.net
30.11.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Dómarar mega dæma fram yfir fimmtugt á Íslandi

Dómarar mega dæma fram yfir fimmtugt á Íslandi
Canon

Mynd: Raggi Óla

KSÍ hefur ákveðið að fella úr gildi ákvæði í reglum um deildadómara á Íslandi. Með þessum breytingum geta dómarar starfað lengur en til fimmtugs, ef þeir standast þrekpróf.

<i>„Starfstíma deildardómara lýkur ekki síðar en í lok þess árs, sem hann verður fimmtugur,"</i> stóð áður í reglugerðinni en þessi liður hefur nú verið strokaður út.
Á Norðurlöndunum hafa þessar aldurstakmarkanir verið felldar niður undanfarin ár.

Í stað aldurstakmarkana eru notuð stöðluð þrekpróf frá FIFA sem dómararnir þurfa að standast.

Dómarar geta því starfað lengur en til fimmtugs ef þeir ná að standast þrekprófin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.