Fotbolti.net
30.11.19 - 11:30
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Newcastle og Man City: Pep gerir þrjár breytingar

Byrjunarlið Newcastle og Man City: Pep gerir þrjár breytingar
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City í fyrsta leik helgarinnar í enska boltanum.
Heimamenn í Newcastle eru fimm stigum frá fallsæti fyrir leikinn og gerir Steve Bruce eina breytingu á liðinu sem tapaði fyrir Aston Villa í síðustu umferð.

Javier Manquillo kemur inn í stöðu hægri bakvarðar í stað DeAndre Yedlin, sem átti ekki sérlega góðan leik á Villa Park.

Man City er í þriðja sæti fyrir þennan leik, níu stigum á eftir toppliði Liverpool. Josep Guardiola gerir þrjár breytingar á liðinu sem lagði Chelsea að velli.

Gabriel Jesus byrjar fremstur enda meiddist Sergio Agüero í síðasta leik. Kyle Walker kemur þá inn í hægri bakvörðinn í stað Joao Cancelo og fær Ilkay Gundogan tækifæri með byrjunarliðinu í stað Rodrigo.

Newcastle: Dubravka, Manquillo, Clark, Fernandez, Dummett, Willems, Shelvey, Hayden, Almiron, Saint-Maximin, Joelinton
Varamenn: Darlow, Schär, Gayle, Krafth, Atsu, S. Longstaff, M. Longstaff

Man City: Ederson, Walker, Stones, Fernandinho, Mendy, Gundogan, Silva (C), Mahrez, De Bruyne, Sterling, Jesus
Varamenn: Bravo, Angelino, Rodrigo, Bernardo, Cancelo, Otamendi, Foden

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.