Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 31. janúar 2019 17:33
Elvar Geir Magnússon
Sveinn Aron Guðjohnsen lánaður í ítölsku C-deildina (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen, sonur Eiðs Smára Guðjohnsen, hefur verið lánaður frá Spezia til Ravenna í ítalska boltanum.

Lánssamningurinn er til sumars en Sveinn fer niður úr ítölsku B-deildinni í C-deildina með þessum lánsskiptum.

Sveinn hefur komið við sögu í átta leikjum hjá Spezia á tímabilinu en ekki náð að skora.

Ítalska C-deildin skiptist í þrjár deildir og er Ravenna í 10. sæti af 20 liðum í einni af þeim.

Sveinn Aron var seldur til Spezia frá Breiðabliki í júlí í fyrra. Hann er 20 ára og er fyrrum leikmaður Vals og HK.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner