Gareth Bale, leikmaður Tottenham Hotspur og velska landsliðsins, gaf meintum rasista tékkneska landsliðsins olnbogaskot í 1-0 sigri Wales á Tékklandi í undankeppni HM í gær.
Bale var í byrjunarliði Wales í sigrinum og lagði upp sigurmarkið fyrir Daniel James á 82. mínútu.
Það var þó annað atvik sem var í umræðunni en Bale gaf Ondrej Kudela, leikmanni Slavia Prague, olnbogaskot er þeir fóru upp í skallaeinvígi.
Kudela er maðurinn sem Glen Kamara, leikmaður Rangers, sakaði um kynþáttafordóma er Slavia Prague og Rangers áttust við í Evrópudeildinni á dögunum en leikmenn tékkneska landsliðsins sendu frá sér stuðningsyfirlýsingu.
Hvort þetta hafi verið óviljaverk hjá Bale eða ekki er erfitt að segja til um en Bale slapp alla vega með skrekkinn.
Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.
Sjáðu olnbogaskotið
Athugasemdir