Risatilboði Chelsea hafnað - Tekur Nuno við West Ham? - Tveir á blaði United - Ungur miðvörður til Arsenal?
   fös 31. mars 2023 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Markalaust á Mallorca
Mynd: EPA
Mallorca 0 - 0 Osasuna
Rautt spjald: Copete, Mallorca ('69)

Real Mallorca og Osasuna neyddust til að deila stigunum á Mallorca í La Liga í dag.

Það var lítið um hættuleg færi í leiknum en heimamenn áttu tvö í fyrri hálfleiknum. Eitt var úr aukaspyrnu sem fór rétt yfir markið og þá átti Pablo Maffeo skot yfir markið af stuttu færi.

Copete, leikmaður Mallorca, var rekinn af velli á 69. mínútu eftir ljóta tæklingu og tókst Osasuna aðeins að skapa sér eitt álitlegt færi eftir það.

Abde átti það undir lok leiksins. Hann kom sér í góða stöðu en skotið var ekki nægilega gott. Lokatölur 0-0 en Osasuna situr í 9. sæti með 35 stig á meðan Mallorca er í 11. sæti með 33 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 4 4 0 0 8 2 +6 12
2 Barcelona 4 3 1 0 13 3 +10 10
3 Espanyol 4 3 1 0 8 5 +3 10
4 Athletic 4 3 0 1 6 4 +2 9
5 Getafe 4 3 0 1 6 4 +2 9
6 Villarreal 4 2 1 1 8 3 +5 7
7 Alaves 4 2 1 1 4 3 +1 7
8 Elche 4 1 3 0 6 4 +2 6
9 Betis 5 1 3 1 6 6 0 6
10 Osasuna 4 2 0 2 3 2 +1 6
11 Atletico Madrid 4 1 2 1 5 4 +1 5
12 Celta 5 0 4 1 4 6 -2 4
13 Sevilla 4 1 1 2 7 7 0 4
14 Vallecano 4 1 1 2 4 5 -1 4
15 Valencia 4 1 1 2 4 8 -4 4
16 Oviedo 4 1 0 3 1 7 -6 3
17 Real Sociedad 4 0 2 2 4 6 -2 2
18 Levante 4 0 1 3 5 9 -4 1
19 Mallorca 4 0 1 3 4 9 -5 1
20 Girona 4 0 1 3 2 11 -9 1
Athugasemdir