Bayern og Real vilja Dalot - Liverpool að vinna í Kerkez - Newcastle ætlar að reyna við Delap
   fös 31. maí 2024 19:58
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Frábær byrjun Njarðvíkinga heldur áfram
Lengjudeildin
Oumar Diouck skoraði tvö fyrir heimamenn
Oumar Diouck skoraði tvö fyrir heimamenn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Njarðvík 5 - 1 Þór
1-0 Dominik Radic ('4 )
2-0 Kaj Leo Í Bartalstovu ('21 )
2-1 Birkir Heimisson ('62 )
3-1 Oumar Diouck ('77 )
4-1 Freysteinn Ingi Guðnason ('90 )
5-1 Oumar Diouck ('93 )
5-1 Rafael Alexandre Romao Victor ('96 , misnotað víti)
Lestu um leikinn

Njarðvík vann fjórða leik sinn í Lengjudeild karla er liðið lagði Þór að velli, 5-1, á Rafholtsvellinum í kvöld.

Gestirnir byrjuðu hörmulega. Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórsara, var með boltann aftast, en sá ekki Dominik Radic sem kom á blindu hliðina og tókst að komast fyrir sendingu Arons og í netið.

Heimamenn voru með ágætis yfirburði í fyrri hálfleiknum og bættu við öðru á 21. mínútu. Radic fann Kaj Leo í Bartalstovu sem lagði boltann á vinstri áður en hann skoraði fallegt mark.

Á síðustu mínútum fyrri hálfleiksins kom Rafael Victor sér í færi gegn sínum gömlu félögum en Aron Snær Friðriksson sá við honum. Mark þarna hefði verið gríðarlega mikilvægt fyrir gestina.

Þórsarar náðu aðeins að ýta Njarðvíkingum aftar á völlinn í byrjun síðari hálfleiks og bar það árangur. Kenneth Hogg tapaði boltanum klaufalega og Þórsarar í yfirtölu. Birkir Heimisson fékk boltann og setti hann örugglega framhjá Aroni Snæ í markinu.

Gestirnir hótuðu jöfnunarmarki nokkrum mínútum síðar en það kom ekki. NJarðvíkingar tóku völdin og var það Oumar Diouck sem gerði þriðja markið. Hogg komst á bakvið vörn Þórsara, hann var með Diouck sér við hlið og valdi það að leggja hann á félaga sinn sem skoraði.

Það var líf og fjör á síðustu mínútum leiksins. Njarðvíkingar skoruðu tvö mörk. Freysteinn Ingi Guðnason gerði fjórða markið áður en Diouck gerði annað mark sitt í leiknum.

Á lokasekúndunum fékk Rafael Victor gullið tækifæri til að skora gegn sínum gömlu félögum er hann fiskaði vítaspyrnu, en honum brást bogalistin á punktinum og setti boltann framhjá markinu.

Lokatölur 5-1 í Njarðvík. Fjórði sigur liðsins í deildinni og er það sem stendur á toppnum með 13 stig en Þór í 4. sæti með 6 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner