Hamar í Hveragerði í sóttkví

Frá Grýluvelli í Hveragerði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá Grýluvelli í Hveragerði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karlalið Hamars í Hveragerði er komið í sóttkví eftir að hafa verið á sama gistiheimili og aðili sem síðan greindist með kórónaveiruna.
Hamar ferðaðist norður um síðustu helgi og lék gegn Samherjum á Hrafnagilsvelli.
Hamarsmenn leika í 4. deildinni þar sem þeir hafa verið á flottu skriði, þeir tróna á toppi C-riðils.
Hamar ferðaðist norður um síðustu helgi og lék gegn Samherjum á Hrafnagilsvelli.
Hamarsmenn leika í 4. deildinni þar sem þeir hafa verið á flottu skriði, þeir tróna á toppi C-riðils.
KSÍ hefur frestað öllum mótsleikjum til 5. ágúst hið minnsta eftir hertar aðgerðir stjórnvalda til að sporna gegn kórónaveirufaraldrinum.


