Fotbolti.net
31.08.26 - 15:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kæra frá Fram á borði aganefndar - Krefjast sigurs í 4-0 tapi

Úr leik Fram og Grindavíkur/Njarðvíkur í sumar.

Úr leik Fram og Grindavíkur/Njarðvíkur í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
Fram hefur kært Grindavík/Njarðvík fyrir brot á lögum KSÍ þegar kemur að skýrslunni sem skilað var inn fyrir leikinn sem spilaður var í Njarðvík 20. ágúst. Fram vill meina að lið Grindavíkur/NJarðvíkur hafi verið ólöglega skipað í leiknum. Málið liggur á borði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.

Hlekkur á leikskýrslu

Skýrslan var ekki lögleg þar sem níu varamenn voru á bekk Grindavíkur/Njarðvíkur en einungis einn þeirra var á 2. flokks aldri, fædd árið 2007 eða síðar. Ef fleiri en sjö varamenn eru á bekknum verða tveir þeirra að vera á 2. flokks aldri, eða enn yngri. Fram krefst þess að vera dæmdur sigur í leiknum.
Grindavík/Njarðvík vann leikinn 4-0 og skoruðu tveir varamenn fyrir Grindavík/Njarðvík undir lok leiks.

Viðurlögin fyrir brot á þessari reglu er allt að 250 þúsund króna sekt en ef aganefnd metur brot Grindavík/Njarðvík sem vísvitandi brot þá gæti Fram fengið dæmdan 3-0 sigur í leiknum.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur var skýrslunni hjá Grindavík/Njarðvík breytt eftir að hún kom upprunalega inn í kerfi KSÍ 75 mínútum fyrir leik. Á upprunalegri skýrslu var einn leikmaður á 2. flokks aldri á meðal átta varamanna.

Í aðdraganda leiksins voru meiðsli hjá Grindavík/Njarðvíkur, Hayden Colson gat ekki spilað, og við það færðist leikmaður á 2. flokks aldri, Hrafnhildur Salka Pálmadóttir, af bekknum og í byrjunarliðið en í hennar stað á bekkinn kom engin þegar upprunaleg skýrsla var staðfest.

Það gleymdist að skrá Emersen Jennings á bekkinn en hún hafði verið utan hóps vegna þess að fjöldi leikmanna utan evrópska efnahagssvæðisins í hópnum hafði verið í hámarki. Hún gat komið inn í hópinn eftir að ljóst varð að Colson gæti ekki spilað. Dómari leiksins var látinn vita og hann staðfesti svo þá breytingu á hópnum. Það gleymdist hins vegar að huga að 2. flokks reglunni við þessa breytingu. Emersen er ekki á 2. flokks aldri og hún skoraði fjórða mark Grindavikur/Njarðvíkur í leiknum.

Grindavík/Njarðvík hefur skilað inn ítarlegri greinargerð til KSÍ.

Það er ljóst að ef úrslitunum verður breytt þá hefur það mikil áhrif á deildina. Liðin myndu hafa sætaskipti, Fram færi upp í 6. sætið og Grindavík/Njarðvík niður í 8. sætið þegar ein umferð er eftir af hefðbundinni deildarkeppni. Eftir næstu umferð verður deildinni skipt upp í efri sex og neðri fjögur. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.

Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í sumar, Grindavík/Njarðvík hefur unnið alla leikina og samanlagt 9-0.

Búist er við niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar fljótlega í þessu máli.

Skýrsla Fótbolta.net eftir leikinn:
Kæra frá Fram á borði aganefndar - Krefjast sigurs í 4-0 tapi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kæra frá Fram á borði aganefndar - Krefjast sigurs í 4-0 tapi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Emersen Jennings kom inn í hópinn eftir að skýrslunni hafði verið skilað. Hún skoraði svo fjórða mark leiksins.

Emersen Jennings kom inn í hópinn eftir að skýrslunni hafði verið skilað. Hún skoraði svo fjórða mark leiksins.

Canon

Mynd: University of Louisville

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik17+2536
2FH17+2334
3ÍBV17-227
4Stjarnan17+526
5Þróttur R.17-322
6Grindavík/Njarðvík17-522
7Þór/KA17-319
8Fram17-1619
9Víkingur R.17-1217
10Valur17-1217
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.