Fotbolti.net
31.10.20 - 14:09
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Burnley og Chelsea: Jói meiddur - Werner á bekknum

Ziyech er að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni.

Ziyech er að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Burnley tekur á móti Chelsea í öðrum leik dagsins í enska boltanum og hafa byrjunarliðin verið kynnt.
Jóhann Berg Guðmundsson er ekki í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla en hann hefur verið í miklum meiðslavandræðum að undanförnu.

Dale Stephens kemur inn í liðið í stað Jóhanns Bergs og er það eina breytingin sem Sean Dyche gerir eftir 0-1 tap gegn Tottenham um síðustu helgi.

Frank Lampard gerir tvær breytingar á liði Chelsea sem gerði markalaust jafntefli við Manchester United. Hakim Ziyech og Tammy Abraham koma inn í liðið í stað Cesar Azpilicueta og Timo Werner.

Burnley: Pope, Lowton, Long, Tarkowski, Taylor, Westwood, Brownhill, Stephens, McNeil, Wood, Barnes
Varamenn: Peacock-Farrell, Rodriguez, Dunne, Thompson, Richardson, Brady, Vydra

Chelsea: Mendy, James, Silva, Zouma, Chilwell, Mount, Kante, Havertz, Ziyech, Abraham, Pulisic
Varamenn: Caballero, Rudiger, Azpilicueta, Jorginho, Hudson-Odoi, Werner, Giroud

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.