B. Davies (stoðsending: D. Solanke)
Mark! Tottenham Hotspur 3, Coventry City 1. Ben Davies (Tottenham Hotspur) vinstri fótar skot fyrir utan teig í neðra vinstra hornið. Stoðsending: Dominic Solanke.J. Rudoni
Jack Rudoni (Coventry City) fær gult spjald fyrir gróft brot.Omar Marmoush (stoðsending: A. Robertson)
Mark! Tottenham Hotspur 2, Coventry City 1. Omar Marmoush (Tottenham Hotspur) hægri fótar skot fyrir utan teig í neðra hægra hornið. Stoðsending: Andy Robertson.J. Rudoni (stoðsending: B. Thomas-Asante)
Mark! Tottenham Hotspur 1, Coventry City 1. Jack Rudoni (Coventry City) hægri fótar skot af vinstri hlið markteigs í neðra vinstra hornið. Stoðsending: Brandon Thomas-Asante í kjölfar skyndisóknar.J. Dasilva
Jay Dasilva (Coventry City) fær gult spjald fyrir gróft brot.D. Solanke
Dominic Solanke (Tottenham Hotspur) fær gult spjald fyrir gróft brot.C. Yirenkyi
Caleb Yirenkyi (Coventry City) fær gult spjald fyrir gróft brot.J. Maddison (stoðsending: M. Kudus)
Mark! Tottenham Hotspur 1, Coventry City 0. James Maddison (Tottenham Hotspur) hægri fótar skot fyrir utan teig í efra vinstra hornið. Stoðsending: Mohammed Kudus. Frábært mark, alveg óverjandi.Strákarnir fóru yfir leikinn í Hjammi.net á laugardaginn.
Það eru stórar fréttir fyrir Tottenham að James Maddison byrjar sinn fyrsta leik á tímabilinu og Dejan Kulusevski er í fyrsta sinn í hóp í rúmlega 500 daga eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.
Andy Robertson, Tosin Adarabioyo, Omar Marmoush og Micky van de Ven koma einnig inn í liðið. Þeir koma inn fyrir Marcos Senesi, Lucas Bergvall, Savio og Conor Gallagher. Savio og Bergvall eru fjarverandi og þá er Rodrigo Bentancur í banni eftir að hafa fengið rautt spjald í 1-1 jafntefli gegn Man Utd.
Það er ein breyting á liði Coventry sem vann Newcastle 4-1. Ephron Mason-Clark sest á bekkinn og Tatsuhiro Sakamoto kemur inn í hans stað.
Tottenham: Kinský; Robertson, Tosin, Van Hecke, Gray; Maddison, Tonali; Solanke, Kudus, Marmoush; Van de Ven.
Varamenn: Dubravka, Senesi, Gallagher, Tel, Fernandes, Kulusevski, Davies, Olusesi, Williams-Barnett.
Coventry: Rushworth, Van Ewijk, Thomas, Pinnock, Dasilva, Yirenkyi, Grimes, Rudoni, Sakamoto, Thomas-Asante, Cherif.
Varamenn: Bentley, Simms, Mason-Clark, Mluni, Awoniyi, Onyeka, Kesler-Hayden, Torp, Hamer.
On site 🫡 https://t.co/F7bGi76MQM
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) October 19, 2026
Our Spurs side in N17 🫡 🔢 @krakenfx https://t.co/lXa5OAFwIY
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) October 19, 2026
Your City for Spurs. 📋 https://t.co/mKdzHAR7Ho
— Coventry City (@CoventryCityFC) October 19, 2026
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir Richarlison velkomið að ræða við sig um framtíð sína hjá félaginu, en tekur jafnframt skýrt fram að málið sé ekki lengur á hans ábyrgð. Richarlison er ekki skráður í leikmannahóp Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, en hann gaf til kynna undir lok félagaskiptagluggans að hann vildi yfirgefa félagið. Hann átti í viðræðum við nokkur félög en ekkert varð úr því og hefur hann síðan þá æft og spilað með U21 árs liði Tottenham.
De Zerbi, stjóri Tottenham, var spurður út í framtíð Richarlison og hvort hann ætti möguleika á að komast aftur inn í aðalliðið. De Zerbi virtist lítið vilja ræða málið og benti á að ákvörðunin hefði ekki verið í hans höndum.
„Ég veit það ekki. Þetta er ekki mitt vandamál lengur. Þú verður að spyrja Vinai (framkvæmdastjóra Tottenham) eða Johan (yfirmann íþróttamála). Sem þjálfari þarf ég hins vegar að sætta mig við stöðuna, styðja við leikmenn sem eru undir pressu og taka ábyrgð, þótt þetta hafi ekki verið mín ákvörðun. Ég tók enga ákvörðun í þessu máli og ef hann vill ræða við mig veit hann hvar mig er að finna. Ég er á skrifstofunni frá 8:30 á morgnana og fram á kvöld. Ég á ekki í neinum vandræðum með neinn, en ég vil ekki ræða þetta frekar. Öll mín einbeiting er á leiknum gegn Coventry og því að gera liðið betra,“ sagði De Zerbi.

Lucas Bergvall og Savio, leikmenn Tottenham, verða frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla. Tottenham keypti Savio frá Manchester City í sumarglugganum og hefur hann verið í byrjunarliðinu í fjórum leikjum á tímabilinu. Hann verður hins vegar ekki með Tottenham gegn Coventry, en Roberto De Zerbi, stjóri félagsins, staðfesti að hann hefði orðið fyrir vöðvameiðslum. Sænski miðjumaðurinn Lucas Bergvall er einnig á meiðslalistanum eftir að hafa fundið fyrir verkjum í hné í 1-1 jafnteflinu gegn Manchester United. Hann náði þó að klára leikinn en þarf nú að taka sér hvíld frá keppni.
„Savio fann fyrir verkjum í vöðva á þriðjudaginn, rétt áður en við héldum til Marbella. Hann verður frá í nokkrar vikur. Lucas fann til í hnénu strax í byrjun leiksins gegn Manchester United þegar hann skapaði fyrsta færið okkar fyrir Solanke. Hann náði að klára leikinn en þurfti að fara í meðhöndlun hjá læknateyminu daginn eftir. Ég reikna með að hann verði frá í um tvær vikur,“ sagði De Zerbi.

Sænski vængmaðurinn Dejan Kulusevski er í leikmannahópi Tottenham. Kulusevski hefur verið frá keppni síðan í maí á síðasta ári þegar hann meiddist á hné eftir aðeins nítján mínútna leik gegn Crystal Palace. Hann gekkst í kjölfarið undir aðgerð og upphaflega var gert ráð fyrir að hann yrði frá í nokkra mánuði. Endurhæfingin gekk hins vegar ekki sem skyldi og eftir ítrekuð bakslög fór svo að hann missti af öllu síðasta tímabili. Svíinn hefur lagt hart að sér við að komast aftur á völlinn og nú sér loksins fyrir endann á þessari löngu fjarveru.
„Já, hann verður á bekknum. Læknateymið hefur gefið grænt ljós á það. Þetta eru líklega bestu fréttirnar sem við höfum fengið síðan eftir leikinn gegn Everton. Hann hefur gengið í gegnum alltof mikið og það færðist risastórt bros yfir andlitið á honum þegar ég sagði honum að hann yrði í hópnum,“ sagði Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham.

Coventry tapaði fyrstu fjórum leikjum sínum en er á góðu skriði og hefur unnið tvo leiki í röð. Tottenham er hins vegar í miklu brasi og leitar enn að sínum fyrsta sigri. Liðið situr á botninum með þrjú stig.
A welcome sight 😍 https://t.co/p5BJXXnOcQ
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) October 19, 2026
Coventry vann annan leikinn sinn í röð í úrvalsdeildinni þegar liðið vann 4-1 sigur á Newcastle í síðustu umferð. Liðið hafði tapað fyrstu fjórum leikjum sínum. Frank Lampard, stjóri Coventry, var himinnlifandi með frammistöðuna.
„Við spiluðum eins og liðið sem við viljum vera. Það var svo mikill andi og orka. Við vitum að við munum þjást á augnablikum í leikjum, við verðum að átta okkur á hvað getustigið er," sagði Lampard.
„Vinnslan í liðinu, trúin og svo fengum við það sem við áttum skiliið. Við verðum að vera með fæturna á jörðinni því þetta var aðeins einn leikur og við þurfum þrjátíu svona í viðbót. Þetta er frábær tilfinning fyrir leikmennina."




