Fotbolti.net
Premier League
Bournemouth
Bournemouth
0 - 0
Nottingham Forest
Nottingham Forest
Fyrir leik
Þarf að fara varlega með Scott

Alex Scott, hinn eftirsótti miðjumaður Bournemouth, er að snúa til baka eftir meiðsli. Marco Rose, stjóri liðsins, segir að það þurfi að passa vel upp á álagið á honum.

„Við verðum að auka spiltímann, hann hefur átt tvær góðar vikur með æfingum og hvíld," segir Rose. Scott er kominn til baka eftir meiðsli á læri sem héldu honum frá keppni í sjö leikjum. Hann var ónotaður varamaður gegn Ipswich Town fyrir landsleikjahléið.

Miðjumaðurinn hefur nú lokið tveimur vikum til viðbótar af æfingum og er tilbúinn að auka smám saman spiltíma sinn. Það er þó óvíst að hann byrji gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn en framundan eru þrír leikir með stuttu millibili hjá Bournemouth.

Rose greindi einnig frá því á fréttamannafundinum að Eli Junior Kroupi væri einnig klár í slaginn og gæti mögulega byrjað gegn Forest.

Alex Scott Bournemouth
EPA
Fyrir leik
Dagskráin

Laugardagur
15:00 Aston Villa - Sunderland
15:00 Bournemouth - Nott. Forest
15:00 Chelsea - Leeds
15:00 Coventry - Crystal Palace
15:00 Tottenham - Ipswich Town
17:30 Newcastle - Arsenal

Sunnudagur
14:00 Hull City - Brighton
16:30 Liverpool - Man Utd

Mánudagur
20:00 Brentford - Everton

Fyrir leik
Vitality Stadium Bournemouth
EPA
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.